Tuesday, April 29, 2014

Dagur 8- Gönguskokk..

Dagur 8-  Gönguskokk..


Jæja ég er svakalega seinheppin þegar kemur að því að fara í ræktina. Án gríns þá bilaði bíllinn í dag!
Það er ekki séns að ég nenni að nota almenningssamgöngur úr 101 í Holtagarða svo ég varð að gera eitthvað annað.

Ég þurfti að skila vinkonu kjól sem hún lánaði mér og hún býr í Skerjafirði svo ég ákvað að skella mér bara til hennar og hljóp/gekk 4,5 km með yngri soninn í kerru!! (ekki hlaupakerru, bara venjuleg með einu lélegu dekki)

Svo bætti ég 1,5 km við þegar ég gekk/skokkaði á foreldrafund í Austurbæjarskóla.

Alls 6 km!

 og ekkert leiðinlegt, bara falleg og skemmtileg leið og sonurinn samkjaftaði ekki allan tímann, held ég hafi fengið 10.000 "Afhverju" spurningar á leiðinni.

(Ferðalagið var alls 7,4 km en ég stökk upp í strætó frá Þorragötu til BSÍ sem er 1,4 km.)

Þetta er allt nákvæmt mælt með Google Maps ;), elska nútíma tækni!

Hér má sjá leiðina.

Ég var svaka dugleg í matnum líka:

Matardagbók:
Morgun Vatnsrútínan og svo Chiagrautur með bláberjum
Millimál, lúka af döðlum og hnetum, vatn og Kaffibolli
Hádegi: Saffran salat með kebab kjöti, vatn, Kaffibolli
Kaffi: Lúka af hnetum og rúsínum
Kvöldmatur: Mexíkósúpa
vatn, vatn, vatn

Æfing: 6 km gönguskokk, 4 ferðir upp og niður stiga á 4 hæð og yogateygjur á baðherberginu.



Ég er orðin svo klikkuð að ég geri hnébeygjur á meðan ég bursta tennur til að nýta tímann, eitthvað er þetta orðinn vani hjá mér og ég stóð sjálfa mig að því að gera hnébeygjur fyrir framan kaffivélina í vinnunni á meðan kaffið lak í bollann, fattaði svo allt í einu að ég væri á almannafæri og að athæfi mitt væri pínu skrítið..

No comments:

Post a Comment