Monday, May 5, 2014

Dagar 9,10,11,12..

Ég er ekki að standa mig á þessu bloggi, enda hundleiðinlegt að skrifa svona matardagbók..

Ekkert Mál fyrir Jón Pál..

Það er ekkert mál að hætta hveiti og sykri, hélt þetta yrði erfiðara verð ég að segja, fyndið hvað maður miklar hluti fyrir sér áður en maður prufar þá.
Á 1 maí var ég í bænum og vildi brunch, sleppti bara beikoni, pönnsum og brauði og fékk meiri ost (Bríe), egg og grænmeti í staðinn, ekkert mál og afsláttur af matnum í þokkabót.
Fór líka í barnaafmæli og var að setja vatnsmelónu og jarðaber á diskinn minn þegar húsfreyjan kemur aðvífandi með sykur-og hveitilausa köku, já venjulegt fólk er bara farið að baka franskar súkkulaði hollustukökur!! Sjúklega góð með þeyttum rjóma!
Ég fór svo í tilraunastarfsemi á föstudag að gera kókoskúlur, þær voru reyndar ekkert spes því það vantaði meiri sætu (döðlurnar búnar), en þær kláruðust nú samt..

Sykurinn orðinn of sætur!

Ég hef heyrt að eftir smá tíma finnst manni sykurinn of sætur þegar maður leyfir sér hann, ég vissi ekki að það væri svoleiðis eftir einungis 2 vikur!!
Ég er ekki með nammidaginn á heilanum, mig dagdreymir ekki um bragðaref og snickers, ég er ekki með sykurþörf á kvöldin, er bara sátt með vatn og stundum popp ef það er kósýkvöld.
Kærastinn var svo elskulegur að kaupa handa mér Stevíu-gos á föstudag, en verra gos hef ég ekki smakkað, þessi stevía er þúsund sinnum sætari en sykur og mér fannst þetta ógeðslegt,  fékk mér líka gin í tónik á laugardag og fannst tónikið of sætt!?? Það er ljúft að finna sykurfíkilinn í sér bara visna og deyja ;)



Á laugardagskvöld fórum við kærustuparið út að borða á Snaps, ég ákvað að taka bara „nammidaginn“ þá og fékk mér franskar með hvítlaukslegna kræklingnum  (bestu frasnkar í bænum eru á Snaps!!) og Créme Brúlee í eftirrétt. Það þýddi samt ekki að ég gat ekki leyft mér neitt á sunnudeginum því Gló er með hveiti-og sykurlausar kökur, fór þangað í kvöldkaffi og fékk súkkulaði brownie, mér fannst hún eiginlega bara of sæt og gat ekki klárað hana..

Ég fór á viktina eftir 10 daga sykur-hveitleysi og var búin að missa 2 kg, án þess að leggja neitt á mig, með þessu áframhaldi verð ég „horfin“ eftir sumarið.. ;)


Ég er að fíla Reebok, fór í skemmtilegan tíma á laugardag sem heitir Buttlift, bara passlega erfiður, en í dag er ég eins og álka, get ekki gengið fyrir harðsperrum, þarf klárlega að fara aftur í næsta tíma, þetta er að virka!

No comments:

Post a Comment