Skamm!
(ég er að skamma mig með vísifingri á lofti)
Ég ber fyrir mér að ég var að ferma og er löglega afsökuð að skrifa ekki, en ég klúðraði matardagbók líka sem er alveg bannað. Mér til málsbótar þá svindlaði ég ekki. (nema tvo munnbita af fermingarköku í gær)
Á brjálæðislega busy laugardegi sem fullur var af undirbúningi, salar-uppröðun og skreytingu þar sem allir aðrir voru að borða bakarísmat, nammi og pítsu þá var ég samt algjörlega að halda mér við mitt og át ávexti, möndlur og rúsínur, fékk mér Hámark í kaffinu og eldaði mér Lax með sætkartöflum og Edamame baunum um kvöldið meðan aðrir fjölskyldumeðlimir slöfruðu í sig pizzu og ís.
Og já drakk bara vatn, mikið af því ;)
Mjög svo ljúffengur lax á korteri: (fyrir einn)
200 gr ferskur Lax
20 Edamame baunir (fæst frosið í Bónus)
10-12 Sætkartöflu franskar (fæst frosið í Bónus)
Slatta af Chillibitum (fæst frosið í Bónus)
Lime-Sítrónupipar
olía
Sætkartöflu-franskar fóru í ofnin með olíu og saltflögum og voru í 15 mín.
Á meðan skellti ég olíu og chillibitum á pönnu á meðalhita.
Kryddaði Laxinn með Lime- og Sítrónupipar og smá chilli og setti á pönnuna með roðið niður í 7 mín og hina hliðina í 7 mín.
Á hinn helming pönnunar hafði ég aðeins mera af chillibitum og steikti afþýddar Edamame baunir þar í 5 mínútur, stráði saltflögum yfir eftirá. (afþýðing tók 1 mínútu í örbylgju, fljótlega leiðin)
Voilá!, brjálæðislega holl og saðsöm máltíð á no-time.
Matardagbókin:
Dagur 5-Laugardagur, stóð við matarplan, fór í sund, lyfti borðum, stólum og allskonar.
Dagur 6- Sunnudagur og "Nammidagur" þar sem ég fékk mér mestmegnis hollan mat enda Mexíkósúpa í boði í fermingunni með nachos og sýrðum (ég sleppti brauði og brauðrétt) en fékk mér að sjálsögðu fermingarköku, kransakökubita og Kókglas.
Dagur 7 -Mánudagur
Morgun- Rúg-hrökkbrauð með osti, appelsínusafi og kaffi
Hádegi, salat (Jöklasalat, paprika, gúrka, cashew, púrrulaukur) með 2 eggjum og vatn
Kaffi: ein lúka af möndlum og rúsínum
Kvöldmatur: Afgangs mexíkósúpa, nachos og sýrður út í, smá bita af brauðrétt þar sem ég ýtti brauðinu frá, svo það var sveppir, papríka, laukur og ostur
Svindl!: Tveir munnbitar a fermingarköku (sem ég var að klára af disk sonarins, bannað að henda..hmm)
Átti líka að fara í ræktina en var svo ógeðslega þreytt eftir fermingarvesenið og illt í fótunum eftir hælaskóna sem ég var í allan sunnudaginn að ég komst ekki upp úr sófanum eftir vinnudaginn.
No comments:
Post a Comment