Tuesday, April 22, 2014

Dagur Jarðar og heilsuátak


Dagur Jarðar!

Alveg fyrir tilviljun ákvað ég að byrja á heilsuátaki mínu á degi jarðar, mér finnst það hinsvegar mjög viðeigandi enda vil ég alltaf vera betri við jörðina um leið og sjálfa mig.
Fór að hugsa hvað ég geri fyrir jörðina?

  • Ég flokka rusl, reyni að kaupa náttúruvænar og umhverfisvottaðar vörur fyrir heimilið og fjölskylduna. (hver vill setja eiturefni á húðina sína og hár??)
  • Endurvinn fatnað og húsbúnað,kaupi notað, sel notað, lána notað og gef notað..
  • Borða ekki dýraafurðir af dýrum í búrum (kjúklingur, svín, egg) og reyni að kaupa lífrænar afurðir þegar þær eru í boði.
  • Nota almenningssamgöngur. (strætó er ekki eins slæmur og meginþorri íslendinga vill meina)
  • Hendi auðvitað aldrei rusli á víðavang og reyni að ganga sem best um náttúruna.


Ég er samt enginn engill, á heimilinu er eyðslumikill jeppi og aðrir fjölskyldmeðlimir borða svín og kjúkling, við látum vatnið renna þegar við erum að vaska upp, setjum daglega í þvottavél, förum í langar sturtur, gleymum að slökkva ljósin og erum með rafmagnstæki á standby. Alltaf má gera betur.

Project: Burt með Mígrenið, inn með orkuna!

Í dag hefst amk. heilsuátak hjá mér.
Fyrsta skref er að hætta að borða sykur og glúten og hreyfa sig daglega.
Aðalástaæða þess að ég er að þessu er að mig vantar orku, vil losna við mígreniköst og vöðvabólgu og missa þessi blessuðu 5 kg sem ekki hafa viljað haggast síðan ég átti seinna barn.

Eftir að hafa orðið vitni af vinkonu sigrast á mígreninu með því einu að taka út sykur og hveiti þá er ég sannfærð um að ég geti það líka enda orðin ansi leið á 1-2 mígeniköstum á mánuði sem vara 12-20 tíma :(

Ég mun verða óþolandi og setja hér inn á bloggið árangur minn, matarræði og uppskriftir til að hvetja sjálfa mig og halda mér við efnið.
Er bara þakklát ef einhver hefur áhuga á að fylgjast með og deila með mér góðum ráðum.

Namaste!

2 comments:

  1. Gott átak! Èg er til í ad uppskriftaperrast med ther��

    ReplyDelete
  2. Æði, takk :) set inn fyrstu uppskrift í kvöld, reyni að hafa eitthvað nýtt daglega enda sjálf að "uppgötva" svo margt.

    ReplyDelete