Tuesday, April 22, 2014

Dagur 1- Chia grautur

Morgunmaturinn Mikilvægi!




Ég er ein af þeim sem verð að borða morgunmat til að fúnkera fram að hádegi. Oftast er ég á hraðferð og næ ekki að borða morgunmat fyrr en ég er komin í vinnuna en þá er ég að venja mig á að drekka 2-3 vatnsglös áður en ég bursta tennur til að undirbúa magann fyrir morgunmat eftir 30-45 mínútur, sjá heilsusamlega ástæðu þess hér!

Chia grautur er rosalega hollur og seðjandi og auðvelt að gera daginn áður eða skella hráefnum í krukku og taka með sér í vinnuna og borða þar.

Í morgun átti ég jarðaber út í en annars má setja alla ávexti, ber,döðlur, fræ og kakónibbur til að bragðbæta grunnuppskriftina:

Chia grautur Basic (3-4 skammtar)


1/2 Bolli Chiafræ
2 Bollar vatn (kalt úr krana)
1/2 bolli kókosmjöl
1 tsk hunang eða agave (má sleppa)

Blandið saman fræjum og vatni og látið standa í 5 mínútur, bætið þá annað sem þið viljið út í og borðið strax eða setjið dagsskammtinn á krukku og rest inn í ísskáp.

Chia grauturinn er gelkenndur með svörtum fræjum og lítur ekkert svaka vel út en ég náði þó að fá soninn til að borða hann með bestu lyst enda "Batman grautur með sprengifræjum".

Njótið.

Dagur 1 Matardagbók
Morgun 2 vatnsglös, chiagrautur með ferskum jarðaberjum
Kaffibolli og vatnsglas
Hádegi- Salat með klettasalati, spínati, papriku, konfekttómötum, 2 eggjum, tsatziki sósu, vatn
Kaffi- Banani og mandarína, svart te
Kvöldmatur- glútenlaust spaghetti og Ebbu Bolognese -hakk, vatn
Vatn

Æfing: Stigvél í 10 mín, 20 mín. í maga, rass, læri, tvihöfða og bingó-æfingar í tækjum (er ég ekki í lingóinu?) 10 mínútna magaæfingar og teyjgur. 

No comments:

Post a Comment