Tuesday, April 29, 2014

Dagur 8- Gönguskokk..

Dagur 8-  Gönguskokk..


Jæja ég er svakalega seinheppin þegar kemur að því að fara í ræktina. Án gríns þá bilaði bíllinn í dag!
Það er ekki séns að ég nenni að nota almenningssamgöngur úr 101 í Holtagarða svo ég varð að gera eitthvað annað.

Ég þurfti að skila vinkonu kjól sem hún lánaði mér og hún býr í Skerjafirði svo ég ákvað að skella mér bara til hennar og hljóp/gekk 4,5 km með yngri soninn í kerru!! (ekki hlaupakerru, bara venjuleg með einu lélegu dekki)

Svo bætti ég 1,5 km við þegar ég gekk/skokkaði á foreldrafund í Austurbæjarskóla.

Alls 6 km!

 og ekkert leiðinlegt, bara falleg og skemmtileg leið og sonurinn samkjaftaði ekki allan tímann, held ég hafi fengið 10.000 "Afhverju" spurningar á leiðinni.

(Ferðalagið var alls 7,4 km en ég stökk upp í strætó frá Þorragötu til BSÍ sem er 1,4 km.)

Þetta er allt nákvæmt mælt með Google Maps ;), elska nútíma tækni!

Hér má sjá leiðina.

Ég var svaka dugleg í matnum líka:

Matardagbók:
Morgun Vatnsrútínan og svo Chiagrautur með bláberjum
Millimál, lúka af döðlum og hnetum, vatn og Kaffibolli
Hádegi: Saffran salat með kebab kjöti, vatn, Kaffibolli
Kaffi: Lúka af hnetum og rúsínum
Kvöldmatur: Mexíkósúpa
vatn, vatn, vatn

Æfing: 6 km gönguskokk, 4 ferðir upp og niður stiga á 4 hæð og yogateygjur á baðherberginu.



Ég er orðin svo klikkuð að ég geri hnébeygjur á meðan ég bursta tennur til að nýta tímann, eitthvað er þetta orðinn vani hjá mér og ég stóð sjálfa mig að því að gera hnébeygjur fyrir framan kaffivélina í vinnunni á meðan kaffið lak í bollann, fattaði svo allt í einu að ég væri á almannafæri og að athæfi mitt væri pínu skrítið..

Dagar 5,6 og 7..

Skamm! 

(ég er að skamma mig með vísifingri á lofti)

Ég ber fyrir mér að ég var að ferma og er löglega afsökuð að skrifa ekki, en ég klúðraði matardagbók líka sem er alveg bannað. Mér til málsbótar þá svindlaði ég ekki. (nema tvo munnbita af fermingarköku í gær)

Á brjálæðislega busy laugardegi sem fullur var af undirbúningi, salar-uppröðun og skreytingu þar sem allir aðrir voru að borða bakarísmat, nammi og pítsu þá var ég samt algjörlega að halda mér við mitt og át ávexti, möndlur og rúsínur, fékk mér Hámark í kaffinu og eldaði mér Lax með sætkartöflum og Edamame baunum um kvöldið meðan aðrir fjölskyldumeðlimir slöfruðu í sig pizzu og ís.
Og já drakk bara vatn, mikið af því ;)

Mjög svo ljúffengur lax á korteri: (fyrir einn)




200 gr ferskur Lax 
20 Edamame baunir (fæst frosið í Bónus)
10-12 Sætkartöflu franskar (fæst frosið í Bónus)
Slatta af Chillibitum (fæst frosið í Bónus)
Lime-Sítrónupipar 
olía

Sætkartöflu-franskar fóru í ofnin með olíu og saltflögum og voru í 15 mín.
Á meðan skellti ég olíu og chillibitum á pönnu á meðalhita.
Kryddaði Laxinn með Lime- og Sítrónupipar og smá chilli og setti á pönnuna með roðið niður í 7 mín og hina hliðina í 7 mín.
Á hinn helming pönnunar hafði ég aðeins mera af chillibitum og steikti afþýddar Edamame baunir þar í 5 mínútur, stráði saltflögum yfir eftirá. (afþýðing tók 1 mínútu í örbylgju, fljótlega leiðin)




Voilá!, brjálæðislega holl og saðsöm máltíð á no-time.



Matardagbókin:

Dagur 5-Laugardagur, stóð við matarplan, fór í sund, lyfti borðum, stólum og allskonar.
Dagur 6- Sunnudagur og "Nammidagur" þar sem ég fékk mér mestmegnis hollan mat enda Mexíkósúpa í boði í fermingunni með nachos og sýrðum (ég sleppti brauði og brauðrétt) en fékk mér að sjálsögðu fermingarköku, kransakökubita og Kókglas. 
Dagur 7 -Mánudagur
Morgun- Rúg-hrökkbrauð með osti, appelsínusafi og kaffi
Hádegi, salat (Jöklasalat, paprika, gúrka, cashew, púrrulaukur) með 2 eggjum og vatn
Kaffi: ein lúka af möndlum og rúsínum
Kvöldmatur: Afgangs mexíkósúpa, nachos og sýrður út í, smá bita af brauðrétt þar sem ég ýtti brauðinu frá, svo það var sveppir, papríka, laukur og ostur
Svindl!: Tveir munnbitar a fermingarköku (sem ég var að klára af disk sonarins, bannað að henda..hmm)
Átti líka að fara í ræktina en var svo ógeðslega þreytt eftir fermingarvesenið og illt í fótunum eftir hælaskóna sem ég var í allan sunnudaginn að ég komst ekki upp úr sófanum eftir vinnudaginn.

Friday, April 25, 2014

Dagur 4- Strætódólgur, slysó og réttur gyðjanna!

Þessi dagur byrjaði mjög furðulega þar sem ungur maður kom inn í strætó alveg brjálaður út í bílstjórann sem hann kallaði öllum illum nöfnum og endaði á að lemja í öxlina!!

Í vinnunni var líka uppi fótur og fit og á krísufundi nærri leið yfir samstarfsmann sem ég skutlaði á slysó. (Ekki út af krísunni samt, ekki svo mikið drama ) Biðin þar er alltaf löng og eftir hana reyndi ég að gera eitthvað gagn i aðstoð við að fylla nýja verslun af vörum. Þurfti frá að hverfa þó varla sæji högg á vatni, veit samt að duglega samstarfsfólkið mun massa þetta fyrir opnun á morgun.
 En einhvernveginn náði ég nú samt að redda ýmsu fyrir ferminguna og elda hollan mat, sit nú á meltunni og safna kröftum fyrir næstu lotu.
Hrós dagsins á 10 ára stjúpdóttir mín sem tók til og vaskaði upp til að gleðja okkur foreldrana sem það svo sannarlega gerði.

Nigella's squid and prawns with chilli and marjoram

Ég fæ soldið æði fyrir réttum og elda nú þennan vikulega, hann er svo sjúklega góður, ég kaupi 2kg poka af smokkfiski og risarækjum í Kolaportinu og á frosið brytjað chilli og kryddjurtir til taks. 10-15 mínútna eldunartími og brjálæðislega gott.


Sjá uppskrift hér

Ingredients

  • 3 tbsp olive oil
  • 1 red chilli, seeds removed and finely chopped
  • 1 unwaxed lemon, zest and juice only
  • garlic clove
  • small bunch parsley, leaves only, finely chopped
  • 2 tbsp finely chopped marjoram leaves
  • 350g/12oz prepared squid (defrosted if frozen), sliced into rings
  • 20 raw peeled king prawns (defrosted if frozen)
  • 1 tsp sea salt flakes or ½ tsp fine salt

Preparation method

  1. Warm the oil in a wok or similarly wide, capacious pan, then add the chopped chilli (with seeds if you like it fiery) and lemon zest, turning them as they sizzle in the hot oil - this is a moment of fragrant joy.
  2. Now grate the garlic and add it, along with about a third of the chopped parsley and marjoram and give a quick stir, before tumbling in the prepared squid and prawns. Stir-fry in the pan for 2-3 minutes, or until the seafood is just cooked through.
  3. Add the juice of half the lemon and most of the remaining herbs and cook, stirring, for another 30 seconds or so. Taste to see if you need any salt or more lemon juice, before turning the seafood fritti out onto a warm platter and scattering it with the last remaining bits of chopped parsley and marjoram.
Mmmmmm...

Nenni ekki að setja inn matardagbók, hef nóg annað að gera, en ég svindlaði ekki. Chia grautur með banana, tríótrópí, lax með rótargrænmeti og mangosalsa, vatn, hnetur, espresso, hleðsla og Nigellu réttur gyðjanna ;)

Thursday, April 24, 2014

Dagur 3- Sumardagurinn fyrsti

Gleðilegt sumar!!


Ég er búin að vera á fullu í dag að hringja, stússast, gera og græja fyrir fermingu frumburðarins sem er um helgina en náði nú samt að hitta fjölskylduna og borða með tengdó líka.
Ekkert mál að sleppa óhollustunni.

Dagur 3- Matardagbók
Morgun: Boozt með hreinu skyri, léttmjólk, 3 ferskum jarðaberjum, banana og frosnum bláberjum (náði ekki morgunrútínunni með vatnsglösin því ég kúrði til kl 10 og var þá svo hrikalega svöng að ég fór beint í booztið)
Kaffibolli
Hádegi: Tvö glútenlaus hrökkbrauð, annað með túnfisksalati og hitt með osti
Kaffitími: Kaffibolli og létt popp með vatni
Kvöldmatur: Lambalæri með Bernaise, lítil bökuð kartefla og grænar baunir, 1/4 rauðvínsglas (fékk mér bara hóflega og einu sinni á diskinn þó mig langaði mest að taka bernaise sósuna sem kallinn eldaði og slafra henni í mig með skeið!!)
Vatn
Harðsperrur eru hættulegar!

Æfing..... nei ég fékk mér frí, það sannaðist í gær þegar ég gleymdi símanum úti í bíl eftir æfingu og gat ekki hugsað mér að fara út aftur að ná í hann og þurfa svo að klífa það fjall sem 4 hæðir af stigum er að ég fór mér kanski aðeins og geyst að taka á því 2 daga í röð í ræktinni svona algjörlega í byrjun.
(En í dag gekk ég samt umþ. 2 km og upp og niður ansi marga stiga sem var vont..)

Dagur 2- Matarsnilld frá Ebbu

Fyrsti glútenlausi-sykurlausi kvöldmaturinn sem ég eldaði handa fjölskyldunni var þessi klassíski Bolognese réttur frá Ebbu með glútenlausu spaghetti.
Þar sem ég borða ekki hakk þá gerði ég réttinn aðeins í öfugri röð og bætti hakki sem ég steikti sér útí eftir að ég var búin að gera sósuna og taka af henni fyrir mig.
(daginn eftir átti ég smá afgang af sósunni og í stað spaghettís sauð ég 2 egg og brytjaði útí ásamt einum avókadó, mjög gott og saðsamt eftir erfiðan Hot Body Balance tíma í Reebok Fitness.)

Myndin á að stækka ef þú smellir á hana!

Dagbókin:

Fyrir aðhaldið á sjálfri mér þá ætla ég að halda matardagbók og deila hér. Þá er enn erfiðara að falla í freistni..

Dagur 2 Matardagbók
Morgun 2 vatnsglös, chiagrautur með bláberjum og möndlumjólk
Kaffibolli og vatnsglas
Hádegi- Kebab "Naanwish" á Saffran - naan (bara salat, kebab og jógúrtsósa) Sódavatn með sítrónu
Kaffibolli
Kvöldmatur- Afgangur af Ebbu Bolognese -hakk, bætti 2 harðsoðnum eggjum og einum avókadó út í.
Vatn

Æfing:
Hot Body Balance (hélt það væri svona létt yoga-pilates-tai chi blanda en ónei það var sko tekið á því á vöðvum sem ég vissi ekki að væru til þar til lá við yfirlið)



Tuesday, April 22, 2014

Dagur 1- Chia grautur

Morgunmaturinn Mikilvægi!




Ég er ein af þeim sem verð að borða morgunmat til að fúnkera fram að hádegi. Oftast er ég á hraðferð og næ ekki að borða morgunmat fyrr en ég er komin í vinnuna en þá er ég að venja mig á að drekka 2-3 vatnsglös áður en ég bursta tennur til að undirbúa magann fyrir morgunmat eftir 30-45 mínútur, sjá heilsusamlega ástæðu þess hér!

Chia grautur er rosalega hollur og seðjandi og auðvelt að gera daginn áður eða skella hráefnum í krukku og taka með sér í vinnuna og borða þar.

Í morgun átti ég jarðaber út í en annars má setja alla ávexti, ber,döðlur, fræ og kakónibbur til að bragðbæta grunnuppskriftina:

Chia grautur Basic (3-4 skammtar)


1/2 Bolli Chiafræ
2 Bollar vatn (kalt úr krana)
1/2 bolli kókosmjöl
1 tsk hunang eða agave (má sleppa)

Blandið saman fræjum og vatni og látið standa í 5 mínútur, bætið þá annað sem þið viljið út í og borðið strax eða setjið dagsskammtinn á krukku og rest inn í ísskáp.

Chia grauturinn er gelkenndur með svörtum fræjum og lítur ekkert svaka vel út en ég náði þó að fá soninn til að borða hann með bestu lyst enda "Batman grautur með sprengifræjum".

Njótið.

Dagur 1 Matardagbók
Morgun 2 vatnsglös, chiagrautur með ferskum jarðaberjum
Kaffibolli og vatnsglas
Hádegi- Salat með klettasalati, spínati, papriku, konfekttómötum, 2 eggjum, tsatziki sósu, vatn
Kaffi- Banani og mandarína, svart te
Kvöldmatur- glútenlaust spaghetti og Ebbu Bolognese -hakk, vatn
Vatn

Æfing: Stigvél í 10 mín, 20 mín. í maga, rass, læri, tvihöfða og bingó-æfingar í tækjum (er ég ekki í lingóinu?) 10 mínútna magaæfingar og teyjgur. 

Dagur Jarðar og heilsuátak


Dagur Jarðar!

Alveg fyrir tilviljun ákvað ég að byrja á heilsuátaki mínu á degi jarðar, mér finnst það hinsvegar mjög viðeigandi enda vil ég alltaf vera betri við jörðina um leið og sjálfa mig.
Fór að hugsa hvað ég geri fyrir jörðina?

  • Ég flokka rusl, reyni að kaupa náttúruvænar og umhverfisvottaðar vörur fyrir heimilið og fjölskylduna. (hver vill setja eiturefni á húðina sína og hár??)
  • Endurvinn fatnað og húsbúnað,kaupi notað, sel notað, lána notað og gef notað..
  • Borða ekki dýraafurðir af dýrum í búrum (kjúklingur, svín, egg) og reyni að kaupa lífrænar afurðir þegar þær eru í boði.
  • Nota almenningssamgöngur. (strætó er ekki eins slæmur og meginþorri íslendinga vill meina)
  • Hendi auðvitað aldrei rusli á víðavang og reyni að ganga sem best um náttúruna.


Ég er samt enginn engill, á heimilinu er eyðslumikill jeppi og aðrir fjölskyldmeðlimir borða svín og kjúkling, við látum vatnið renna þegar við erum að vaska upp, setjum daglega í þvottavél, förum í langar sturtur, gleymum að slökkva ljósin og erum með rafmagnstæki á standby. Alltaf má gera betur.

Project: Burt með Mígrenið, inn með orkuna!

Í dag hefst amk. heilsuátak hjá mér.
Fyrsta skref er að hætta að borða sykur og glúten og hreyfa sig daglega.
Aðalástaæða þess að ég er að þessu er að mig vantar orku, vil losna við mígreniköst og vöðvabólgu og missa þessi blessuðu 5 kg sem ekki hafa viljað haggast síðan ég átti seinna barn.

Eftir að hafa orðið vitni af vinkonu sigrast á mígreninu með því einu að taka út sykur og hveiti þá er ég sannfærð um að ég geti það líka enda orðin ansi leið á 1-2 mígeniköstum á mánuði sem vara 12-20 tíma :(

Ég mun verða óþolandi og setja hér inn á bloggið árangur minn, matarræði og uppskriftir til að hvetja sjálfa mig og halda mér við efnið.
Er bara þakklát ef einhver hefur áhuga á að fylgjast með og deila með mér góðum ráðum.

Namaste!