Eftir að ég hætti að borða hveiti og sykur fæ ég iðulega spurninguna "Hvað ertu eiginlega að borða?" og "Ertu ekki alltaf svöng?"
Hvað er ég að borða?
Morgunmatur:
Chia grautur með kókosmjöli, ávöxtum, berjum, möndlum, fer eftir skapi..Soðin egg og ávaxtasafi eða kaffi
Bananalummur (1 stappaður banani, 1 egg hrært saman og steikt á pönnu, kryddað með kanil)
Hafragraut (lífrænir tröllahafrar) með rúsínum og döðlum eða mangó og trönuberjum
Glútenlaust hrökkkex með smurkavíar og eggjum eða hnetusmjöri og banönum
Ávexti
Hádegismatur:
Fiskur eldaðan á ýmsan máta með sætum kartöflum eða hýðishrísgrjónum og salatiSalat með eggjum (allskonar blöndur, kál, tómatar, gúrkur, paprika, brokkolí, kasjúhnetur, púrrlauk etc.)
Sushi (spari, hrísgrjónin eru kolvetnarík)
Grænmetisbuff með rótargrænmeti
Zucchini og sveppaklattar með rótargrænmeti og salati
Ég borða salat með öllum mat, amk. 50% af disknum er grænmeti
Kaffitími:
Banani, epli, appelsínu, prótíndrykk, smoothie, boozt, hnetur, orkustöngKvöldmatur:
Fiskur eldaðan á ýmsan máta með sætum kartöflum eða hýðishrísgrjónum og salatiLambakjöt með sætkartöflufrönskum og sósu
Ommeletta með því sem til er í ísskápnum, sveppum, hvílauk, parmesan osti ofl. Salat með.
Edamamebaunir með chilli og sjávarsalti
Tælenskir og indverskir grænmetisréttir með allskonar góðum kryddum og sósum gerðum frá grunni
Súpur, mexíkósk sterk, grænmetissúpur, fiskisúpa, humarsúpa ofl..
Glútenlausar núðlur (Sobu, hrísgrjóna) með tígrisrækjum, smokkfisk og grænmeti (sjá uppskrift í fyrri færslu)
Sushi til hátíðabrigða ofl. sem mér dettur í hug. Google er vinur minn ;)
Kvöldnasl:
Ég nasla ekki lengur á kvöldin, fæ mér ískalt vatn.Um helgar kanski popp, á nammidegi kanski eitthvað gott.
Það er ekki erfitt að forðast sykur, hveiti og unnar matvörur.
Þetta er allt mun auðveldara en fólk heldur og það tekur ekki langan tíma að venja sig af slæmum venjum og bæta góðum við í staðinn.