Friday, May 16, 2014

Hvað ertu eiginlega að borða?

Eftir að ég hætti að borða hveiti og sykur fæ ég iðulega spurninguna "Hvað ertu eiginlega að borða?" og "Ertu ekki alltaf svöng?"


Svarið er að ég hef nóg um að velja í matarræði, borða góðan mat og er ekki svöng!!

Hvað er ég að borða?


Morgunmatur:

Chia grautur með kókosmjöli, ávöxtum, berjum, möndlum, fer eftir skapi..
Soðin egg og ávaxtasafi eða kaffi
Bananalummur (1 stappaður banani, 1 egg hrært saman og steikt á pönnu, kryddað með kanil)
Hafragraut (lífrænir tröllahafrar) með rúsínum og döðlum eða mangó og trönuberjum
Glútenlaust hrökkkex með smurkavíar og eggjum eða hnetusmjöri og banönum
Ávexti

Hádegismatur:

Fiskur eldaðan á ýmsan máta með sætum kartöflum eða hýðishrísgrjónum og salati
Salat með eggjum (allskonar blöndur, kál, tómatar, gúrkur, paprika, brokkolí, kasjúhnetur, púrrlauk etc.)
Sushi (spari, hrísgrjónin eru kolvetnarík)
Grænmetisbuff með rótargrænmeti
Zucchini og sveppaklattar með rótargrænmeti og salati

Ég borða salat með öllum mat, amk. 50% af disknum er grænmeti

Kaffitími:

Banani, epli, appelsínu, prótíndrykk, smoothie, boozt, hnetur, orkustöng

Kvöldmatur:

Fiskur eldaðan á ýmsan máta með sætum kartöflum eða hýðishrísgrjónum og salati
Lambakjöt með sætkartöflufrönskum og sósu
Ommeletta með því sem til er í ísskápnum, sveppum, hvílauk, parmesan osti ofl. Salat með.
Edamamebaunir með chilli og sjávarsalti
Tælenskir og indverskir grænmetisréttir með allskonar góðum kryddum og sósum gerðum frá grunni
Súpur, mexíkósk sterk, grænmetissúpur, fiskisúpa, humarsúpa ofl..
Glútenlausar núðlur (Sobu, hrísgrjóna) með tígrisrækjum, smokkfisk og grænmeti (sjá uppskrift í fyrri færslu)
Sushi til hátíðabrigða ofl. sem mér dettur í hug. Google er vinur minn ;)

Kvöldnasl:

Ég nasla ekki lengur á kvöldin, fæ mér ískalt vatn.

Um helgar kanski popp, á nammidegi kanski eitthvað gott.

Það er ekki erfitt að forðast sykur, hveiti og unnar matvörur.
Þetta er allt mun auðveldara en fólk heldur og það tekur ekki langan tíma að venja sig af slæmum venjum og bæta góðum við í staðinn.


Fyrir utan að reyna velja lífrænt þá borða ég heldur ekkert verksmiðjualið kjöt eins og kjúkling, svín og naut.
Dýravelferð og náttúruvernd stendur mér nærri og ég er ekkert "heilög" eða "öfgafull" fyrir það, mér finnst þetta bara einfaldlega "common sense" og vona að sem flestir hugsi sig um hvað það er að borða, er það gott fyrir þig? Er það gott fyrir aðra? Var farið illa með dýr við gerð þessa matar? Eru eiturefni í matnum þínum?


Namaste 




No comments:

Post a Comment