Ok ég ætlaði mér of mikið að blogga daglega og halda dagbók, so sorrí..
Star Wars Hamingju boltarnir í myndbandinu hér munu bæta það upp!
Hvaða undur og stórmerki hafa gerst?
Ég hef ekki fengið höfuðverk í 23 daga!!!
Ég hef haldið mig algjörlega frá hveiti og sykri 6 daga vikunnar nema síðustu helgi sem ég tók 2 daga "sukk".
Mér líður MIKLU betur, ég fékk höfuðverki eða þyngli yfir höfuðið 1-3 sinnum í viku, mígrenikast 1-2 í mánuði og ég hef ekkert fengið núna.
Mér finnst það ótrúlegt og lífgæði mín eru verulega bætt bara við það.
4 kg og Vatnsdrykkja!
Vigtin segir að ég hafi misst 4 kg, en ég held hún sé rangstillt, sé ekki það mikinn mun á fötunum mínum. Ég er ekkert svengri en vanalega, ég narta ekki á kvöldin því ég er bara södd eftir kvöldmatinn og ég drekk mun meira vatn en áður. Ég er ekki hætt að drekka kaffi en næsta skref er að minnka kaffidrykkju ásamt því að ég er að minnka mjólkurvörur verulega.
Þetta er svo miklu minna mál en ég hélt.
Ég finn ekki svakalegan mun á orkunni fyrir utan þá að höfuðverkirnir rotuðu mig alveg áður, ég er dauðþreytt á kvöldin eins og áður enda í fullri vinnu, með börn, að reyna finna tíma til að hreyfa mig amk. 3 í viku og á endalausum fundum og bréfaskriftum vegna hátíðar sem ég er að skipuleggja.
Já svo er ég alltaf með harðsperrur, sem er gott, ef ég er ekki með harðsperrur þá veit ég að það er tími til kominn að fara á æfingu, og er ánægð í Reebok, fullt af skemmtilegum tímum.
Svo er húðin mín líka betri, engar bólur, frísklegri og þéttari. (vatnsdrykkjan og EGF húðdroparnir)
No comments:
Post a Comment